Hleð spilara!
Sumarhúsið
Brunavarnir, vatnstjónsvarnir og þjófavarnir í sumarhúsinu.
Bruni
- Farið vel yfir brunavarnir í sumarhúsinu. Reykskynjarar eiga að vera í öllum rýmum, eldvarnarteppi miðsvæðið og slökkvitæki þar sem auðvelt er að komast að því.
- Gott er að gera rýmingaráætlun ef til bruna kemur til að flýta fyrir björgun.
- Aldrei skal skilja eftir logandi kertaljós og fara skal varlega með opinn eld í og við sumarhúsið.
Rafmagn
- Gætið þess að hönnun raflagna í sumarhúsinu sé eftir byggingareglugerðum og mikilvægt er að fagmenn sjái um að ganga frá öllu rafmagni. Athugið, varist að leggja fatnað á rafmagnsofna.
- Munið að taka ávallt raftæki úr sambandi þegar sumarhúsið er yfirgefið.
Innbrot
- Gangið vel frá öllum gluggum og hurðum og athugið sérstaklega glugga- og hurðalæsingar. Skiljið sumarhúsið aldrei eftir opið á meðan enginn er í því og látið verðmæti aldrei liggja á glámbekk. Geymið ekki einstaka verðmæta hluti í sumarhúsinu.
- Gott er að biðja nágranna að líta við með húsinu þegar þú ert ekki á staðnum.
- Læsið aðalhliði að sumarhúsahverfinu til þess að torvelda óviðkomandi akstur að því, t.d. yfir vetrartímann.
Vatn
- Hitaveituvatn á Íslandi getur verið hættulega heitt og því óvarlegt að skilja lítil börn ein eftir í eða við heita potta.
- Mikilvægt er að skrúfað sé fyrir kalda vatnið þegar sumarhúsið er yfirgefið til að minnka hættu á tjónum og frosti í lögnum. Tappa skal af vatnslögnum og salerni ef bústaðurinn er óupphitaður svo að frjósi ekki í lögnum. Athugið að í lokuðum kerfum þarf að vera frostlögur.
- Vatnsinntak á helst að vera í sér rými utan hússins til þess að koma í veg fyrir tjón á öllu húsinu ef lagnir gefa sig.
- Sjá einnig lagnatjón í sumarhúsum.
Gas
- Gastæki eru algeng í sumarhúsum. Gæta skal sérstakrar varúðar hvað varðar meðferð gastækja. Best er að staðsetja gaskútinn utandyra í sumarhúsum, búa vel um hann og láta fagmenn sjá um allan frágang. Geymið gasgrill aldrei innanhúss, né varagaskúta. Staðsetjið gasgrill aldrei upp við húsið og nálægt rúðum. Passið sérstaklega að láta gaskútinn ekki standa undir heitu grillinu.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
